Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

27. september 2016

Þessi frétt er meira en árs gömul

Hraðakstur á Reykjanesbraut í Hafnarfirði

Brot 67 ökumanna voru mynduð á Reykjanesbraut í Hafnarfirði á föstudag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Reykjanesbraut í norðurátt, á móts við Brunnhóla. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 456 ökutæki þessa akstursleið og því óku allmargir ökumenn, eða 15%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 104 km/klst en þarna er 90 km hámarkshraði. Tíu óku á 110 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 133.

Vöktun lögreglunnar á Reykjanesbraut er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.