21. júní 2023
21. júní 2023
Þessi frétt er meira en árs gömul
Hraðakstur á Reykjanesbraut í Hafnarfirði
Brot 32 ökumanna voru mynduð á Reykjanesbraut í Hafnarfirði í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Reykjanesbraut í norðurátt, á móts við Straum. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 694 ökutæki þessa akstursleið og því óku hlutfallslega fáir ökumenn, eða 5%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 91 km/klst en þarna er 80 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 98.
Vöktun lögreglunnar á Reykjanesbraut er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að sól og þurrt var á meðan hraðamælingunni stóð.