30. mars 2011
30. mars 2011
Þessi frétt er meira en árs gömul
Hraðakstur á Reykjanesbraut í Garðabæ
Brot 117 ökumanna voru mynduð á Reykjanesbraut í Garðabæ í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Reykjanesbraut í norðurátt, við Hnoðraholt. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 870 ökutæki þessa akstursleið og því óku allmargir ökumenn, eða 13%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 94 km/klst en þarna er 80 km hámarkshraði. Átján óku á 100 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 119.