27. september 2018
27. september 2018
Þessi frétt er meira en árs gömul
Hraðakstur á Reykjanesbraut í Garðabæ
Brot 150 ökumanna voru mynduð á Reykjanesbraut í Garðabæ í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Reykjanesbraut í norðurátt, að Hnoðraholti. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 1.184 ökutæki þessa akstursleið og því óku allmargir ökumenn, eða 13%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 95 km/klst en þarna er 80 km hámarkshraði. Tuttugu og fjórir óku á 100 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 134.
Vöktun lögreglunnar á Reykjanesbraut er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að rigningaskúrir voru á meðan hraðamælingunni stóð.