Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

12. janúar 2018

Þessi frétt er meira en árs gömul

Hraðakstur á Reykjanesbraut í Garðabæ

Brot 88 ökumanna voru mynduð á Reykjanesbraut í Garðabæ í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Reykjanesbraut í suðurátt, að Kauptúni. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 1.124 ökutæki þessa akstursleið og því óku allnokkrir ökumenn, eða 8%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 93 km/klst en þarna er 80 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 111.

Vöktun lögreglunnar á Reykjanesbraut er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að rigning var á meðan hraðamælingunni stóð.