Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

11. janúar 2022

Þessi frétt er meira en árs gömul

Hraðakstur á Nýbýlavegi í Kópavogi

Brot 19 ökumanna voru mynduð á Nýbýlavegi í Kópavogi í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Nýbýlaveg í vesturátt, á móts við Nýbýlaveg 56. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 458 ökutæki þessa akstursleið og því óku hlutfallslega fáir ökumenn, eða 4%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 63 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 77.

Vöktun lögreglunnar á Nýbýlavegi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að skýjað, blautt og snjóél voru á meðan hraðamælingunni stóð.