Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

31. maí 2021

Þessi frétt er meira en árs gömul

Hraðakstur á Norðurströnd á Seltjarnarnesi

Brot 13 ökumanna voru mynduð á Norðurströnd á Seltjarnarnesi á föstudag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Norðurströnd í austurátt, við Fornuströnd. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 135 ökutæki þessa akstursleið og því óku nokkrir ökumenn, eða 10%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 63 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 71.

Vöktun lögreglunnar á Norðurströnd er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að rigning var á meðan hraðamælingunni stóð.