Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

13. júní 2024

Þessi frétt er meira en árs gömul

Hraðakstur á Norðurströnd á Seltjarnarnesi

Brot 23 ökumanna voru mynduð á Norðurströnd á Seltjarnarnesi í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Norðurströnd í austurátt, við Austurströnd. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fór 101 ökutæki þessa akstursleið og því ók rúmlega fimmtungur ökumanna, eða 23%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 63 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 71.

Vöktun lögreglunnar á Norðurströnd er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að skýjað og þurrt var á meðan hraðamælingunni stóð.