Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

25. september 2023

Þessi frétt er meira en árs gömul

Hraðakstur á Norðurströnd á Seltjarnarnesi

Brot 19 ökumanna voru mynduð á Norðurströnd á Seltjarnarnesi á föstudag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Norðurströnd í austurátt, við Fornuströnd. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 132 ökutæki þessa akstursleið og því óku allmargir ökumenn, eða 14%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 64 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 87.

Vöktun lögreglunnar á Norðurströnd er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að skýjað og þurrt var á meðan hraðamælingunni stóð.