27. mars 2014
27. mars 2014
Þessi frétt er meira en árs gömul
Hraðakstur á Njarðargötu í Reykjavík
Brot 28 ökumanna voru mynduð á Njarðargötu í Reykjavík í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Njarðargötu í suðurátt, á móts við Íslenska erfðagreiningu. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fór 171 ökutæki þessa akstursleið og því óku allnokkrir ökumenn, eða 16%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 63 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 70.
Vöktun lögreglunnar á Njarðargötu er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.