Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

14. júní 2023

Þessi frétt er meira en árs gömul

Hraðakstur á Njarðargötu í Reykjavík

Brot 28 ökumanna voru mynduð á Njarðargötu í Reykjavík á mánudag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Njarðargötu í norðurátt, við Íslenska erfðagreiningu . Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 223 ökutæki þessa akstursleið og því óku allmargir ökumenn, eða 13%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 64 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 75.

Vöktun lögreglunnar á Njarðargötu er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að skýjað og þurrt var á meðan hraðamælingunni stóð.