Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

2. september 2024

Þessi frétt er meira en árs gömul

Hraðakstur á Nesvegi á Seltjarnarnesi

Brot 39 ökumanna voru mynduð á Nesvegi á Seltjarnarnesi á föstudag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Nesveg í austurátt, á móts við Nesveg 125. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 163 ökutæki þessa akstursleið og því ók tæplega fjórðungur ökumanna, eða 24%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 53 km/klst en þarna er 40 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 63.

Vöktun lögreglunnar á Nesvegi er liður í umferðareftirliti hennar við grunnskóla á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að skýjað og þurrt var á meðan hraðamælingunni stóð.