Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

19. desember 2023

Þessi frétt er meira en árs gömul

Hraðakstur á Nesvegi á Seltjarnarnesi

Brot 4 ökumanna voru mynduð á Nesvegi á Seltjarnarnesi í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Nesveg í vesturátt, á móts við Suðurmýri 34. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 185 ökutæki þessa akstursleið og því óku sárafáir ökumenn, eða 2%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 52 km/klst en þarna er 40 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 54.

Vöktun lögreglunnar á Nesvegi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að skýjað og blautt var á meðan hraðamælingunni stóð.