Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

28. september 2023

Þessi frétt er meira en árs gömul

Hraðakstur á Nesvegi á Seltjarnarnesi

Brot 16 ökumanna voru mynduð á Nesvegi á Seltjarnarnesi í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Nesveg í vesturátt, við Tjarnarmýri. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 167 ökutæki þessa akstursleið og því óku allnokkrir ökumenn, eða 10%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 54 km/klst en þarna er 40 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 65.

Vöktun lögreglunnar á Nesvegi er liður í umferðareftirliti hennar við grunnskóla á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að skýjað og blautt var á meðan hraðamælingunni stóð.