Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

17. mars 2023

Þessi frétt er meira en árs gömul

Hraðakstur á Nesvegi á Seltjarnarnesi

Brot 34 ökumanna voru mynduð á Nesvegi á Seltjarnarnesi í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Nesveg í austurátt, við Nesveg 123. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 147 ökutæki þessa akstursleið og því ók meira en fimmtungur ökumanna, eða 23%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 54 km/klst en þarna er 40 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 67.

Vöktun lögreglunnar á Nesvegi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að sól og þurrt var á meðan hraðamælingunni stóð.