Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

18. október 2016

Þessi frétt er meira en árs gömul

Hraðakstur á Nesvegi á Seltjarnarnesi

Brot 11 ökumanna voru mynduð á Nesvegi á Seltjarnarnesi í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Nesveg í vesturátt, á móts við Tjarnarmýri. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 147 ökutæki þessa akstursleið og því óku nokkrir ökumenn, eða 7%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 61 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði.

Vöktun lögreglunnar á Nesvegi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.