Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

25. ágúst 2014

Þessi frétt er meira en árs gömul

Hraðakstur á Neshaga í Reykjavík

Brot 30 ökumanna voru mynduð á Neshaga í Reykjavík á föstudag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Neshaga í vesturátt, við Melaskóla. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 120 ökutæki þessa akstursleið og því ók fjórðungur ökumanna, eða 25%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 43 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði.

Vöktun lögreglunnar á Neshaga er liður í umferðareftirliti hennar við grunnskóla á höfuðborgarsvæðinu.