Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

13. ágúst 2024

Þessi frétt er meira en árs gömul

Hraðakstur á Neshaga í Reykjavík

Brot 23 ökumanna voru mynduð á Neshaga í Reykjavík í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Neshaga í vesturátt, að Hjarðarhaga. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 64 ökutæki þessa akstursleið og því ók meira en þriðjungur ökumanna, eða 36%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 44 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 56.

Vöktun lögreglunnar á Neshaga er liður í umferðareftirliti hennar við grunnskóla á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að skýjað og blautt var á meðan hraðamælingunni stóð.