Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

14. mars 2023

Þessi frétt er meira en árs gömul

Hraðakstur á Mosavegi í Reykjavík

Brot 20 ökumanna voru mynduð á Mosavegi í Reykjavík í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Mosaveg í vesturátt, við Starengi 14. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 82 ökutæki þessa akstursleið og því ók tæplega fjórðungur ökumanna, eða 24%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 43 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 53.

Vöktun lögreglunnar á Mosavegi er liður í umferðareftirliti hennar við grunnskóla á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að sól og þurrt var á meðan hraðamælingunni stóð.