24. mars 2022
24. mars 2022
Þessi frétt er meira en árs gömul
Hraðakstur á Mosavegi í Reykjavík
Brot 43 ökumanna voru mynduð á Mosavegi í Reykjavík í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Mosaveg í austurátt, að Starengi. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 113 ökutæki þessa akstursleið og því ók meira en þriðjungur ökumanna, eða 38%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 43 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 49.
Vöktun lögreglunnar á Mosavegi er liður í umferðareftirliti hennar við grunnskóla á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að skýjað og blautt var á meðan hraðamælingunni stóð.