Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

31. maí 2021

Þessi frétt er meira en árs gömul

Hraðakstur á Mosavegi í Reykjavík

Brot 49 ökumanna voru mynduð á Mosavegi í Reykjavík á fimmtudag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Mosaveg í austurátt, við Starengi. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 133 ökutæki þessa akstursleið og því ók meira en þriðjungur ökumanna, eða 37%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 44 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 54.

Vöktun lögreglunnar á Mosavegi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að sól og þurrt var á meðan hraðamælingunni stóð.