Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

2. apríl 2014

Þessi frétt er meira en árs gömul

Hraðakstur á Miklubraut í Reykjavík

Brot 23 ökumanna voru mynduð á Miklubraut í Reykjavík í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Miklubraut í austurátt, á móts við Rauðagerði. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 1.316 ökutæki þessa akstursleið og því óku fáir ökumenn, eða 2%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 92 km/klst en þarna er 80 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 100.

Vöktun lögreglunnar á Miklubraut er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.