Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

19. mars 2014

Þessi frétt er meira en árs gömul

Hraðakstur á Miklubraut í Reykjavík

Brot 31 ökumanns var myndað á Miklubraut í Reykjavík í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Miklubraut í vesturátt, á móts við Rauðagerði. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 1.471 ökutæki þessa akstursleið og því óku hlutfallslega fáir ökumenn, eða 2%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 92 km/klst en þarna er 80 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 108.

Vöktun lögreglunnar á Miklubraut er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.