Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

29. september 2021

Þessi frétt er meira en árs gömul

Hraðakstur á Miklubraut í Reykjavík

Brot 151 ökumanns var myndað á Miklubraut í Reykjavík frá föstudeginum 24. september til þriðjudagsins 28. september. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Miklubraut í vesturátt, á gatnamótum við Kringlumýrarbraut. Á fjórum sólarhringum fóru 11.919 ökutæki þessa akstursleið og því óku hlutfallslega mjög fáir ökumenn of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 79 km/klst en þarna er 60 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 118. Einu ökutæki var ekið gegn rauðu ljósi á umræddu tímabili.

Vöktun lögreglunnar á Miklubraut er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.