Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

23. desember 2020

Þessi frétt er meira en árs gömul

Hraðakstur á Miklubraut í Reykjavík

Brot 138 ökumanna voru mynduð á Miklubraut í Reykjavík frá föstudeginum 18. desember til miðvikudagsins 23. desember. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Miklubraut í vesturátt, á gatnamótum við Kringlumýrarbraut. Á fimm sólarhringum fóru 16.723 ökutæki þessa akstursleið og því óku hlutfallslega mjög fáir ökumenn of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 78 km/klst en þarna er 60 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 101. Fjórum ökutækjum var ekið gegn rauðu ljósi á umræddu tímabili.

Vöktun lögreglunnar á Miklubraut er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.