Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

23. nóvember 2018

Þessi frétt er meira en árs gömul

Hraðakstur á Miklubraut í Reykjavík

Brot 24 ökumanna voru mynduð á Miklubraut í Reykjavík í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Miklubraut í austurátt, að Skeiðarvogi. Á einni klukkstund, eftir hádegi, fóru 1.133 ökutæki þessa akstursleið og því óku hlutfallslega fáir ökumenn, eða 2%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 94 km/klst en þarna er 80 km hámarkshraði. Þrír óku á 100 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 119.

Vöktun lögreglunnar á Miklubraut er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að sól og þurrt var á meðan hraðamælingunni stóð.