Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

10. desember 2010

Þessi frétt er meira en árs gömul

Hraðakstur á Miklubraut í Reykjavík

Brot 97 ökumanna voru mynduð á Miklubraut í Reykjavík í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Miklubraut í austurátt, á móts við Rauðarárstíg. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fór 1.101 ökutæki þessa akstursleið og því óku allnokkrir ökumenn, eða 9%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 73 km/klst en þarna er 60 km hámarkshraði. Sjö óku á 80 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 86.