22. júní 2018
22. júní 2018
Þessi frétt er meira en árs gömul
Hraðakstur á Miklubraut í Reykjavík
Brot 102 ökumanna voru mynduð á Miklubraut í Reykjavík frá miðvikudeginum 20. júní til fimmtudagsins 21. júní. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Miklubraut í austurátt, á gatnamótum við Kringlumýrarbraut. Á einum sólarhring fóru 5.460 ökutæki þessa akstursleið og því óku hlutfallslega fáir ökumenn of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 79 km/klst en þarna er 60 km hámarkshraði.
Vöktun lögreglunnar á Miklubraut er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.