Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

3. desember 2014

Þessi frétt er meira en árs gömul

Hraðakstur á Miklubraut í Reykjavík

Brot 51 ökumanns var myndað á Miklubraut í Reykjavík í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Miklubraut í austurátt, á móts við Miklubraut 22. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 836 ökutæki þessa akstursleið og því óku hlutfallslega fáir ökumenn, eða 6%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 73 km/klst en þarna er 60 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 83.

Vöktun lögreglunnar á Miklubraut er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.