Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

11. maí 2016

Þessi frétt er meira en árs gömul

Hraðakstur á Meistaravöllum í Reykjavík

Brot 15 ökumanna voru mynduð á Meistaravöllum í Reykjavík í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Meistaravelli í norðurátt, á móts við Meistaravelli 9. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 43 ökutæki þessa akstursleið og því ók meira en þriðjungur ökumanna, eða 35%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 45 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 65.

Vöktun lögreglunnar á Meistaravöllum er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.