Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

11. maí 2023

Þessi frétt er meira en árs gömul

Hraðakstur á Markavegi í Kópavogi

Brot 11 ökumanna voru mynduð á Markavegi í Kópavogi í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Markaveg í vesturátt, að Hæðarenda (hesthúsahverfi). Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 28 ökutæki þessa akstursleið og því ók meira en þriðjungur ökumanna, eða 39%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 48 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 73.

Vöktun lögreglunnar á Markavegi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að skýjað og þurrt var á meðan hraðamælingunni stóð.