Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

14. júlí 2022

Þessi frétt er meira en árs gömul

Hraðakstur á Laugarásvegi í Reykjavík

Brot 48 ökumanna voru mynduð á Laugarásvegi í Reykjavík í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Laugarásveg í suðurátt, að Langholtsvegi. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 117 ökutæki þessa akstursleið og því ók meira en þriðjungur ökumanna, eða 40%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 42 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 51.

Vöktun lögreglunnar á Laugarásvegi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að skýjað og þurrt var á meðan hraðamælingunni stóð.