Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

8. júní 2022

Þessi frétt er meira en árs gömul

Hraðakstur á Laugalæk í Reykjavík

Brot 8 ökumanna voru mynduð á Laugalæk í Reykjavík í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Laugalæk í vesturátt, að Rauðalæk. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 73 ökutæki þessa akstursleið og því óku allnokkrir ökumenn, eða 11%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 40 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 42.

Vöktun lögreglunnar á Laugalæk er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að skýjað og þurrt var á meðan hraðamælingunni stóð.