Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

11. ágúst 2023

Þessi frétt er meira en árs gömul

Hraðakstur á Lambhagavegi í Reykjavík

Brot 15 ökumanna voru mynduð á Lambhagavegi í Reykjavík í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Lambhagaveg í norðurátt, á móts við Lambhaga garðyrkjustöð. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 128 ökutæki þessa akstursleið og því óku allnokkrir ökumenn, eða 12%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 62 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 69.

Vöktun lögreglunnar á Lambhagavegi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu en þess má geta að skýjað og þurrt var á meðan hraðamælingunni stóð.