Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

2. apríl 2014

Þessi frétt er meira en árs gömul

Hraðakstur á Krókhálsi í Reykjavík

Brot 13 ökumanna voru mynduð á Krókhálsi í Reykjavík í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Krókháls í vesturátt, að Stuðlahálsi. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 144 ökutæki þessa akstursleið og því óku allnokkrir ökumenn, eða 9%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 63 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 71.

Vöktun lögreglunnar á Krókhálsi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.