Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

8. mars 2012

Þessi frétt er meira en árs gömul

Hraðakstur á Kristnibraut í Reykjavík

Brot 41 ökumanns var myndað á Kristnibraut í Reykjavík í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Kristnibraut í austurátt, við Ingunnarskóla. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 65 ökutæki þessa akstursleið og því ók meirihluti ökumanna, eða 63%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 45 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Ellefu óku á 50 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 58.

Vöktun lögreglunnar á Kristnibraut er liður í umferðareftirliti hennar við skóla á höfuðborgarsvæðinu.