2. september 2010
2. september 2010
Þessi frétt er meira en árs gömul
Hraðakstur á Kristnibraut í Reykjavík
Brot 31 ökumanns var myndað á Kristnibraut í Reykjavík í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Kristnibraut í austurátt, við Ingunnarskóla. Á einni klukkustund, um hádegisbil, fóru 55 ökutæki þessa akstursleið og því ók meirihluti ökumanna, eða 56%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 45 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 53.
Vöktun lögreglunnar á Kristnibraut er liður í umferðareftirliti hennar við grunnskóla á höfuðborgarsvæðinu.