Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

28. ágúst 2024

Þessi frétt er meira en árs gömul

Hraðakstur á Kristnibraut í Reykjavík

Brot 6 ökumanna voru mynduð á Kristnibraut í Reykjavík í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Kristnibraut í vesturátt, á móts við Ingunnarskóla. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 53 ökutæki þessa akstursleið og því óku nokkrir ökumenn, eða 11%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 44 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 48.

Vöktun lögreglunnar á Kristnibraut er liður í umferðareftirliti hennar við grunnskóla á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að skýjað og þurrt var á meðan hraðamælingunni stóð.