Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

30. ágúst 2023

Þessi frétt er meira en árs gömul

Hraðakstur á Kristnibraut í Reykjavík

Brot 3 ökumanna voru mynduð á Kristnibraut í Reykjavík í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Kristnibraut í vesturátt, á móts við Ingunnarskóla. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 62 ökutæki þessa akstursleið og því óku mjög fáir ökumenn, eða 5%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 42 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 43.

Vöktun lögreglunnar á Kristnibraut er liður í umferðareftirliti hennar við grunnskóla á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að sól og þurrt var á meðan hraðamælingunni stóð.