Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

18. nóvember 2019

Þessi frétt er meira en árs gömul

Hraðakstur á Kringlumýrarbraut í Reykjavík

Brot 108 ökumanna voru mynduð á Kringlumýrarbraut í Reykjavík á fimmtudag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Kringlumýrarbraut í suðurátt, að N1 Fossvogi. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 1.567 ökutæki þessa akstursleið og því óku allnokkrir ökumenn, eða 7%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 93 km/klst en þarna er 80 km hámarkshraði. Ellefu óku á 100 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 109.

Vöktun lögreglunnar á Kringlumýrarbraut er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að sól og þurrt var á meðan hraðamælingunni stóð