Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

5. febrúar 2018

Þessi frétt er meira en árs gömul

Hraðakstur á Kringlumýrarbraut í Reykjavík

Brot 61 ökumanns var myndað á Kringlumýrarbraut í Reykjavík í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Kringlumýrarbraut í suðurátt, að N1 Fossvogi. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 1.200 ökutæki þessa akstursleið og því ók hlutfallslega fáir ökumenn, eða 5%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 93 km/klst en þarna er 80 km hámarkshraði. Fimm óku á 100 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 110.

Vöktun lögreglunnar á Kringlumýrarbraut er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að skýjað, snjóþekja og hálka var á meðan hraðamælingunni stóð.