6. maí 2014
6. maí 2014
Þessi frétt er meira en árs gömul
Hraðakstur á Kringlumýrarbraut í Reykjavík
Brot 18 ökumanna voru mynduð á Kringlumýrarbraut í Reykjavík í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Kringlumýrarbraut í suðurátt, sunnan við Bústaðabrú. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 695 ökutæki þessa akstursleið og því óku fáir ökumenn, eða 3%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 95 km/klst en þarna er 80 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 108.
Vöktun lögreglunnar á Kringlumýrarbraut er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.