Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

26. september 2017

Þessi frétt er meira en árs gömul

Hraðakstur á Kringlumýrarbraut í Reykjavík

Brot 162 ökumanna voru mynduð á Kringlumýrarbraut í Reykjavík í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Kringlumýrarbraut í suðurátt, að N1 Fossvogi. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 1.540 ökutæki þessa akstursleið og því óku allmargir ökumenn, eða 11%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 96 km/klst en þarna er 80 km hámarkshraði. Þrjátíu og þrír óku á 100 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 126.

Vöktun lögreglunnar á Kringlumýrarbraut er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.