Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

24. júní 2014

Þessi frétt er meira en árs gömul

Hraðakstur á Korpúlfsstaðavegi í Reykjavík

Brot 21 ökumanns var myndað á Korpúlfsstaðavegi í Reykjavík á miðvikudag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Korpúlfsstaðaveg í austurátt, við Bakkastaði. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 82 ökutæki þessa akstursleið og því ók um fjórðungur ökumanna, eða 26%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 64 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði.

Vöktun lögreglunnar á Korpúlfsstaðavegi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.