Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

10. maí 2011

Þessi frétt er meira en árs gömul

Hraðakstur á Korpúlfsstaðavegi í Reykjavík

Brot 36 ökumanna voru mynduð á Korpúlfsstaðavegi í Reykjavík í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Korpúlfsstaðaveg í austurátt, við Bakkastaði. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 108 ökutæki þessa akstursleið og því ók þriðjungur ökumanna, eða 33%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 64 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. Sex óku á 70 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 83.

Þess má geta að lögreglan hefur verið við hraðamælingar á þessum stað nokkrum sinnum áður og þá hefur brotahlutfallið verið 31-39% en meðalhraði hinna brotlegu hefur verið um 65 km/klst.