9. mars 2022
9. mars 2022
Þessi frétt er meira en árs gömul
Hraðakstur á Korpúlfsstaðavegi í Reykjavík
Brot 23 ökumanna voru mynduð á Korpúlfsstaðavegi í Reykjavík í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Korpúlfsstaðaveg í vesturátt, að Bakkastöðum. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 115 ökutæki þessa akstursleið og því ók fimmtungur ökumanna, eða 20%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 66 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 79.
Vöktun lögreglunnar á Korpúlfsstaðavegi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að skýjað og þurrt var á meðan hraðamælingunni stóð.