Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

4. maí 2015

Þessi frétt er meira en árs gömul

Hraðakstur á Kóravegi í Kópavogi

Brot 20 ökumanna voru mynduð á Kóravegi í Kópavogi í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Kóraveg í vesturátt, við Drekakór. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 34 ökutæki þessa akstursleið og því ók meirihluti ökumanna, eða 59%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 45 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 58.

Vöktun lögreglunnar á Kóravegi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.