Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

4. nóvember 2014

Þessi frétt er meira en árs gömul

Hraðakstur á Kópavogsbraut

Brot 6 ökumanna voru mynduð á Kópavogsbraut í Kópavogi í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Kópavogsbraut í vesturátt, á móts við Kópavogsbraut 9. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 56 ökutæki þessa akstursleið og því óku nokkrir ökumenn, eða 11%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 64 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 70.

Vöktun lögreglunnar á Kópavogsbraut er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.