Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

25. apríl 2017

Þessi frétt er meira en árs gömul

Hraðakstur á Kársnesbraut í Kópavogi

Brot 46 ökumanna voru mynduð á Kársnesbraut í Kópavogi í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Kársnesbraut í austurátt, á móts við Kársnesbraut 19. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 230 ökutæki þessa akstursleið og því ók fimmtungur ökumanna, eða 20%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 65 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. Sex óku á 70 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 85.

Vöktun lögreglunnar á Kársnesbraut er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.