Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

19. nóvember 2014

Þessi frétt er meira en árs gömul

Hraðakstur á Kaplaskjólsvegi í Reykjavík

Brot 23 ökumanna voru mynduð á Kaplaskjólsvegi í Reykjavík í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Kaplaskjólsveg í suðurátt, á móts við Kaplaskjólsveg 67. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 58 ökutæki þessa akstursleið og því óku margir ökumenn, eða 40%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 42 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 51.

Vöktun lögreglunnar á Kaplaskjólsvegi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.